Staðarreglur á Hamarsvelli 2022 1. Vallarmörk: Völlurinn afmarkast af girðingu þar sem hún er, annars af hvítum hælum. 2. Bætt lega vegna ástands vallar: Bolti sem liggur á snöggslegnu svæðum má vítalaust lyfta, hreinsa og leggja aftur innan einnar kylfulengdar, en ekki nær holu. Bolti sem þannig er lagður er í leik má ekki lyfta aftur samkvæmt þessari reglu. Leyfð er færsla á flötum sem nemur púttershaus. 3. Grundi í aðgerð: Blómabeð fyrir aftan 1. flöt er grund í aðgerð og er leikur þar bannaður. Beðin eru afmörkuð af grænum hælum með blárri línu og ná út að vallarmörkum. Blómabeð ofan við 6. flöt eru grund í aðgerð og er leikur þar bannaður og eru beðin merkt með einum bláum hæl með hvítum toppi. 4. Lausung Trjáflísar (kurl) í trjábeðum eru lausung. Um það gildir regla 15.1 5. Hindranir Jarðfastir steinar á snöggslegnu svæði, fjarlægðarmerki, stuðlabergssteinar við teiga, vökvunarbúnaður, ruslatunnur og bekkir, auglýsingaskilti og stóra Appelsín-dósinn (gamli súrheysturninn) á 4. braut ásamt steinum og ljóskösturum í kringum hana eru óhreyfanlegar hindranir. (Regla 16.1) Steinar í glompum eru hreyfanlegar hindranir. (Regla 15-2) 6. Vítasvæði (regla 17) Vítasvæði eru eingöngu merkt með rauðu spreyi. 7. Varabolti vegna bolta innan vítasvæðis á 13. og 16. braut. „Ef leikmaður veit ekki hvort bolti hans er innan vítasvæðis vinstra megin á 13. og 16. braut, má leikmaðurinn leika varabolta samkvæmt reglu 18.3 sem er breytt þannig: Við að leika varaboltanum má leikmaðurinn nota fjarlægðarlausn (sjá reglu 17.1d(1)), aftur-á-línu lausn (sjá reglu 17.1d(2)) eða hliðar lausn (sjá reglu 17.1d(3)). Eftir að leikmaðurinn hefur leikið varabolta samkvæmt þessari reglu má hann ekki nota aðra möguleika samkvæmt reglu 17.1 í tengslum við upphaflega boltann. Við að ákvarða hvenær varaboltinn verður bolti leikmannsins í leik eða hvenær verður eða má hætta leik með honum eiga ákvæði reglna 18.3c(2) og 18.3c(3) við, nema að: Þegar upphaflegi boltinn finnst innan vítasvæðis og innan þriggja mínútna leitartímans. Leikmaðurinn getur valið að: Halda leik áfram með upphaflega boltanum þar sem hann liggur innan vítasvæðisins og þá má ekki leika varaboltanum. Öll högg með varaboltanum áður en leik með honum var hætt (þar á meðal slegin högg og vítahögg sem beinlínis hlutust af leik hans) gilda ekki, eða Leika varaboltanum og þá má ekki leika upphaflega boltanum. Þegar upphaflegi boltinn finnst ekki innan þriggja mínútna leitartímans eða það er vitað eða nánast öruggt að hann er innan vítasvæðis. Varaboltinn verður bolti leikmannsins, í leik. Víti fyrir brot á staðarreglu: Almennt víti.