
Einn skemmtilegasti golfvöllur sem ég hef spilað. Snyrtilegur, krefjandi og allt til fyrirmyndar.
Geir Geirsson
Golfklúbbur Reykjavíkur
Hamarsvöllur
Klukkutíma akstur frá höfuðborgarsvæðinu og þú er mættur til að spila golf í náttúrufegurð.

Hamarvöllur er 18. holur og bíður upp á áskoranir eins og mikinn gróður, stór tré, vötn, eyju, hundslappir og margt fleira sem gerir góðann völl frábærann.

Að loknum leik er góð hugmynd að næra sig með góðum mat og drykk á Hótel Hamri. 18. flötin, Par 3, liggur upp við veitingasalinn og þar er hægt að horfa á kylfinga slá inn á flötina.